Heim Samband Nýskráning

Fréttir

 

 

 
   16.01.2009 - Nýjungar í Notando.is  
  Á undanförnum mánuðum hefur farið fram mikil þróun á Notando kerfinu í samráði við notendur. Reikningagerð hefur verið einfölduð til muna, hægt er að taka upplýsingar beint út í Excel, Google Docs eða Google Spreadsheet á mörgum stöðum í kerfinu. Launakerið er mjög öflugt og heldur t.d. utan um uppsafnan persónuafslátt, veikindadaga og frídaga. Kerfið býður upp á að viðskiptavinir geta beðið um sérþróanir ef þeir eru með sérstakar óskir. Við hvetjum því notendur að velja Notando.is sem lausn fyrirtækisins fremur en Xbókhald.is sem er einfaldara kerfi og ekki með jafn mikið af möguleikum.  
 

 

 
   02.04.2008 - Ný fyrirtækjalausn frá Notando.  
  Notando.is sem rekur Xbókhald hefur nú opnað fyrir nýja lausn sem er þó nokkuð fullkomnari en Xbókhald. Þessi lausn er með flestu því sem Xbókhald hefur en einnig með ýmislegt fleira ss. flýtifærslum, fullkomnara launakerfi, jöfnun greiðslna, sendingu reikninga í PDF þegar þeir eru gerðir, vistun á bæði haus og fæti á reikninga og ýmislegu fleira. Endilega kíkið á http://www.Notando.is áður en þið veljið ykkur bókhaldskerfi.  
 

 

 
   20.07.2007 - Gagnagrunnar og vefþjónar settir í hýsingu hjá Hýsingu (EJS).  
  Hugbúnaður og gagnagrunnar hafa verið fluttir á nýja öfluga Hewlett Packard servera sem hýstir eru hjá Hýsingu (EJS). Þetta þýðir enn öruggari rekstur þar sem rafhlaða og öflug sjálfvirk Dísel rafstöð tryggir nánast 100% uppitíma í rafmagnsleysi. Vélbúnaður er með aðskyldum spegluðum diskum, tvöföldum spennubreytum og fjaraðgangi um tvö aðskyld net. Öflugt slökkvikerfi er til staðar til að stöðva eld strax í fæðingu og takmarka þannig hættu á gagnatapi, auk þess sem að aðgangur er takmarkaður með öflugu öryggiskerfi. Þá er ennfremur notast við Redhat Enterprise ásamt Selinux, en sú samsetning fékk nýverið vottun frá varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna um að uppfylla öryggiskröfur til að þjónusta útibú þeim tengdum. Tenging mun einnig verða stöðugari þar sem umferð er nú um ljósleiðar en ekki SHDSL tengingu.  
 

 

 
   02.05.2007 - Dótturfélag stofnað í Úkraníu  
  Logiledger Ísland sem rekur Xbókhald hefur nú stofnað dótturfélag í Donetsk í Úkraníu. Skrifstofa félagsins er í miðborginni steinsnar frá Donetsk háskóla og óperunni. Nú starfa þar 6 manns en gert er ráð fyrir að starfsfólki muni fjölga þar á næstu mánuðum.  
 

 

 
   09.03.2007 - Móttaka kreditkortagreiðslna  
  Í samstarfi við Korta hafa notendur Xbókhalds nú möguleika á að taka á móti kreditkortagreiðslum beint í kerfi við reikningsgerð. Þetta gerir notendum xbókhalds kleift að leyfa sínum viðskiptamönnum að greiða með kreditkortum án þess að þurfa að setja upp posa kerfi.  
 

 

 
  20 .02.2007 - Frítt launabókhald fyrir einyrkja  
  Ákveðið hefur verið að leyfa einyrkjum að notfæra sér 100% frían aðgang að launakerfi Xbókhalds út allt árið 2007. Þeir geta nýtt kerfið til að halda utan um gögnin sín, sent staðgreiðsluskil rafrænt til RSK og allt annað sem launabókhaldið býður upp á. EInnig verða uppfærslur á launabókhaldskerfi innifaldar fyrir einyrkja. Einu kvaðirnar eru þær að aðeins má gera laun fyrir einn aðila. Þetta tilboð mun eflaust koma sér mjög vel fyrir alla minni aðila sem þurfa að halda um launin sín. Dagar Excel launaseðla eru hér með úr sögunni.  
 

 

 
  13 .02.2007 - Rafrænt kerfi  
  Notendur þurfa ekki lengur fornúmeraða reikninga frá prentsmiðju né heldur að sækja um TS númer hjá RSK. Xbókhald er rafrænt kerfi sem uppyllir þaraf lútandi lög og reglur. Þetta er mjög góð breyting sem mun einfalda málin fyrir notendur kerfisins enn frekar.  
 

 

 
  .02.2007 - Námskeið  
  Námskeið var haldið á Grand Hótel þar sem farið var yfir öll helstu grunnatriði Xbókhalds. Góð mæting var á námskeiðið og mörgum góðum spurningum var svarað. Annað námskeið verður haldið innan skamms fyrir skráða notendur.  
 

 

 
  22 .01.2007 - Rafræn skil á staðgreiðslu  
  Notendur geta nú gert rafræn skil á staðgreiðslu vegna launa til RSK beint úr kerfinu. Aðgerðin er verulega einföld en lítið annað þarf að gera en að velja þann mánuð sem skila þarf fyrir, gera villuprófum á gögnum með því að smella á einn takka og svo staðfesta skil. Í framhaldi má kalla á kvittun frá RSK á PDF formi og greiða í næsta banka eða greiða greiðslubeiðni sem hefur myndast í netbanka.  
 

 

 
  22 .12.2006 - Fleiri nýjungar  
  Notendur geta nú gert rafræn skil á virðisaukaskatti til RSK beint úr kerfinu. Þetta er í raun orðið svo einfalt að lítið annað þarf að gera en að smella 3svar á takka og staðfesta skil en greiðsluseðill verður í beinu framhaldi tilbúinn í banka til greiðslu. Á næstu vikum verður að sama skapi hægt að skila staðgreiðslu og tryggingargjaldi beint til RSK úr kerfinu sem einnig mun einfalda þá aðgerð verulega fyrir notendur okkar.  
 

 

 
  09 .10.2006 - Skandinvest fjárfestir í Xbókhald  
  Skandinvest fjárfestingarfélag hefur fjárfest í Xbókhald og stefnir á að efla þróun enn frekar viðskiptavinum hér heima og erlendis til hagsbóta.  
 

 

 
  26 .09.2006 - Fyrirtækjavefsíður  
  Mjög auðvelt er nú að breyta texta og upplýsingum á fyrirtækjavefsíðum (sem notendur kerfisins fá frítt) og notendur þurfa ekkert að kunna í HTML til þess að gera slíkt. Hægt er að gera texta þykkan, breyta fontum og setja linka, tenga inn myndir og ýmislegt fleira á samskonar máta og ef unnið er í Word. Ýmsar fleiri breytingar eru á leiðinni varðandi fyrirtækjavefinn svo notendur geti gert allar þær breytingar sem þeir vilja, á sérlega einfaldan máta, til að gera vefinn einstakan fyrir sitt fyrirtæki.  
 

 

 
  21 .09.2006 - Verðhækkun  
  Í fyrsta skipti frá stofnun kerfisins, vegna verðbólgu og kostnaðar við þróun nýrra kerfishluta hefur verið ákveðið að hækka verðið. Mánaðargjald fyrir alla grunnkerfishluta hækkar í 3.000 kr á mánuði frá og með 1. október. Ekkert annað kerfi býður samskonar lausn á viðlíka verði og vonumst við því eftir skilningi á þessari hækkun á mjög lágu verði. Núverandi viðskiptvinir og þeir sem skrá sig fyrir mánaðarmótin 1. október greiða gamla verðið í 3 mánuði í viðbót eða til 31 desember 2006 áður en verðhækkun tekur gildi.  
 

 

 
  01 .09.2006 - Launakerfi  
  Launakerfið sem margir okkar notenda hafa óskað eftir hefur nú verið gangsett. Í því er hægt að setja upp eins marga starfsmenn og þörf er á. Kerfið reiknar launin og notendur prenta auðveldlega út launaseðla eftir þörfum. Gert er ráð fyrir öllum helstu þörfum sem launakerfi þarf að uppfylla í þessu kerfi. Seinna í þessum mánuði verður búin til flash hjálp sem kennir á launakerfið. Hægt er að bóka launin beint úr launakerfi í bókhaldskerfið og er kerfið nú þegar uppsett tilbúið til notkunar með þennan möguleika. Það eina sem þarf að gera er að skrá starfsmenn, og byrja svo að gera launaseðla !! Hægt er að prenta skýrslur til einföldunar á skilum staðgreiðslu og tryggingargjaldi til RSK, ásamt skýrslum með yfirliti um greiðslur til lífeyrissjóða og stéttarfélaga.  
 

 

 
  15 .03.2006 - Nýjungar í kerfi  
  Öllu útliti innra vefs hefur verið breytt en þar sem breyting felst aðallega í staðsetningu valmynda, en ekki valmöguleikum, ætti það ekki að hafa ruglandi áhrif fyrir notendur. Einnig hefur fellivalmynd vegna reikningsgerðar verið breytt þannig að nú þarf aðeins að slá inn fyrstu stafina til að fá í valmynd aðeins þá aðila sem hafa sömu upphafsstafi. Mikilvægt er þó að staðfesta val með því að fara á aðila með örvum og staðfesta með biltakka eða velja aðila með mús úr felliglugga. Þessi breyting flýtir til muna gerð reikninga þegar viðskiptavinir eða birgjar eru orðnir margir.  
 

 

 
  .02.2006 - Truflanir á þjónustu  
  Einhverjar truflanir hafa verið á þjónustu í nokkra daga (yfirleitt um 1 mínotu í senn) vegna þess að netkort í netþjóni var bilað. Vegna þess hve truflunin var óregluleg tók nokkurn tíma að finna út hvað var í gangi en það hefur nú verið lagað.  
 

 

 
  13 .01.2006 - Kerfi uppfært  
  Tölvubúnaður var uppfærður á föstudagsnóttu og geta kerfisins aukin til muna. Notendur munu væntanlega finna þetta með enn hraðari svörun á síðum kerfisins.  
 

 

 
  10 .08.2005 - Lifandi hjálp  
  Nú hefur verið sett upp ný Lifandi Hjálp sem gerir kleift að aðstoða notendur enn frekar. Gamla hjálparkerfinu var skipt út fyrir nýtt mun betra kerfi sem auðvelt er að nota fyrir bæði notendur og þá sem aðstoða. Ef þig vantar aðstoð, endilega hafðu samband og ef við erum ekki við geturðu alltaf einnig sent skilaboð í gegnum kerfið. Á ytri vefnum er aðstoðin undir slóðinni á vinstri hönd og heitir "Fá hjálp" en í kerfinu er lítill hjálparkall sem býður aðstoð á öllum aðalsíðum.  
 

 

 
  07 .06.2005 - Símasvik  
  Nokkuð er um að erlendir einstaklingar reyna að svíkja peninga út úr eigendum íslenskra fyrirtækja með ýsmum ráðum. Xbókhald hefur því sett upp síðu með ábendingum um þau svik sem eru í gangi. Ef þú lendir í einhverju sem lítur út fyrir að vera svik, skoðaðu xbokhald.is/svik.htm og ef þú sérð ekki upplýsingar um þetta þar að þá skaltu sendu okkur línu, og málið verður kannað nánar og tilkynning sett upp.  
 

 

 
  21 .03.2005 - Frír fyrirtækjavefur fyrir notendur kerfisins  
  Allir notendur Xbókhalds.is fá frían fullhannaðan einkavef fyrir fyrirtækin sín. Þessi vefur inniheldur allar helstu upplýsingar um fyrirtækið ásamt vörulista með öllum þeim vörum sem fyrirtækið hefur skráð í kerfið og valið að hafa sjáanlegar á vefnum. Notendur geta breytt öllum texta, sett inn fréttir með myndum og fleira. Einnig er á þessum einkavef innskráning fyrir viðskiptavini viðeigandi fyrirtækis þar sem þeir geta skráð sig inn og fengið upplýsingar um sína stöðu, prentað út afrit af reikningum og fleira. Almennt gildir að slóðin sem vefurinn er á nafn fyrirtækis og notað er í innskráningu á xbókhald.is og svo xbókhald.is eða til dæmis gæti þessi einkavefur verið á slóðinni fyrirtæki.xbokhald.is. Þessa vefslóð geta notendur Xbókhalds t.d. sett á nafnspjöldin sín svo viðskiptavinir þeirra geti skoðað nánar hvað þeir hafi upp á að bjóða því í dag þurfa öll fyrirtæki að bjóða upp á vef með upplýsingum fyrir viðskiptavini.  
 

 

 
  01 .03.2005 - Námskeið á vefnum  
  Hafist hefur verið handa við að setja námskeið um bókhaldskerfið beint á vefinn. Þetta mun án efa aðstoða þá sem eru að byrja að nota bókhaldskerfi jafnframt þá sem lengra eru komnir. Fyrstu námskeiðin eru þegar komin og má finna á forsíðunni en stöðugt verður bætt við á næstu vikum. Ef þið hafið óskir um kennslu á einhverju sérstöku sendið póst á support@xbokhald.is og við munum reyna að koma kennslu um það atriði innan tveggja daga á netið!  
 

 

 
  01 .10.2004 - Viðbætur við bókhaldskerfið  
  Fyrsta nýjungin er sú að notendur geta núna látið bókhaldskerfið hanna fyrir sig grafíska hausa á reikningana sína. Ekki er vitað til að önnur kerfi á markaðnum bjóði upp á þennan möguleika. Einnig var bætt við innskönnun skjala en það gerir notendum kleift að geyma afrit af skjölum og blaða þeim beint upp á tölvunni síðar meir til að spara sér ferð og leit í möppum.  
 

 

 
  19 .01.2004 - Logiledger selur Skjavarpi.is  
  Eftir aðeins ár í rekstri var veltan í skjávörpum farin úr engu í vel yfir 10 milljónir á ári. Þar sem stefna Logiledger er ekki að opna verslun var ákveðið að selja þessa einingu til Port Verslunarfélags sem nú hefur opnað samnefnda versun í Síðurmúla.  
 

 

 
  21.11.2003 - Logiledger opnar Handtak.is  
  Handtak.is er markaður á milli verktaka og verkkaupa. Á þessum markaði geta verkkaupar á einfaldan máta sett inn verk og valið undir hvaða verkflokk það fellur og það er samstundis sent í SMS á viðeigandi verktaka. Þeir geta svo komið á vefinn og lesið meira um það og boðið í verkið.  
 

 

 
  24.11.2001 - Logiledger opnar fyrir bókhaldsvef   
  Opnað hefur verið fyrir aðgang að Logiledger bókhalds og samskiptakerfinu. Vefurinn verður fyrst um sinn aðeins opin fyrir erlend fyrirtæki til notkunar.  
     
  01.06.2001 - Þróun og hönnun hefst á Logiledger bókhaldskerfi   
  Þróun og hönnun er hafin á kerfi sem samtvinnar samskipti og bókhaldskerfi.