Heim Samband Nýskráning

Öryggi

Ef valin eru örugg samskipti fara öll samskipti í gegn með 128 bita dulkóðun en það þýðir að nánast ógerlegt er fyrir óviðkomandi að "hlera" þau samskipti sem fara á milli þín og Xbókhald.is. Thawte vottar að samskiptin við Xbókhald séu á vegum fyrirtækisins Logiledger á Íslandi ehf og að þau fari fram með 128 bita dulkóðun.

Vefþjónn sér um vinnslu verka sem skrást og/eða eru unnin upp úr gagnagrunnsvél. Tvær gagnagrunnsvélar eru notaðar þannig að ef önnur skyldi skemmast vegna þess að harður diskur fer að þá er önnur tilbúin að taka við á mjög skömmum tíma.

Gagnagrunnsvélin afritar alla Xbókhald.is gagnagrunna í heild sinni á hverri nóttu á aðskildan harðan disk, en það afrit er svo uppfært á hverju kveldi og svo vikan geymt í minnst 3 mánuði. Auk þess er afrit tekið upp á "vélmennaskipti"segulbandsstöð allar nætur, alla virka daga, 7 virka daga í röð. Þannig eru alltaf minnst til 7 síðustu virkir dagar til í heild sinni hver fyrir sig og svo er til viku afrit marga mánuði aftur í tímann. Í hverri viku eru gagnagrunnar vistaðir og aðskildir frá tölvubúnaði. Gagnagrunnar eru reglulega skoðaðir með tilliti til enduruppsetningar.

Varanlegt afrit af gagnagrunnum er geymt á sex mánaðarfresti.