Heim Samband Nýskráning

Spurt og Svarað

Hverjir nota Xbókhald?

Xbókhald er án jafninga í bæði verðum og möguleikum sem það bíður upp á og því hafa hin ýmsu fyrirtæki gerst áskrifendur. Á meðal áskrifenda eru heildsalar, hótel og verktakar sem sjá sér hag í ódýru, auðveldu og góðu kerfi sem allir geta lært að nota og gefur möguleika á fjölda notenda, mörgum starfsstöðvum ásamt óteljandi öðrum skemmtilegum nýjungum.

Hvað get ég verið með marga notendur á kerfinu?

Þú mátt skrá eins marga notendur á gagnagrunninn þinn eins og þú vilt án þess að greiða neitt aukalega fyrir það.

Hverju geta mínir viðskiptavinir fengið aðgang að?

Sem notandi hjá Xbókhald.is geturðu sent þínum viðskiptavinum notendanafn og lykilorð þannig að þeir geti náð sér í reikningana sína, skoðað þá eða athugað stöðu sína hjá þér. Einnig getað þeir skoðað vörur sem þú ert með skráðar að því tilskyldu að þú leyfir skoðun á þeim. Þessi aðgangur viðskiptavina þinna er séraðgangur og koma þeir því ekki beint á síður Xbókhald.is.

Get ég notað minn eigin reikningshaus á reikningana mína?

Það er um að gera að hlaða inn þínum eiginn haus svo reikningarnir séu vel merktir þér. Þetta er gert undir þínum fyrirtækjaupplýsingum og getur þú sett hausinn inn hvenær sem er. Einnig getur þú notað stöðluðu reikningana sem eru með engum haus ef þú vilt bíða um stund. Hausinn þarf að vera 640x80pixels til að passa sem best á reikningana. Ef þú vilt að við hönnum fyrir þig haus á reikninginn kostar það 3.000 kr + VSK.

Eru gögnin mín örugg?

Öll samskipti fara í gegnum SSL sem þýðir að þú ert með minnst 128 bita dulkóðum, sem mjög erfitt er að brjóta. Til að tryggja gagnaöryggi er notuð sjálfvirk segulbandsstöð sem tekur upp hvern virkan dag á hverri nóttu, 7 daga í röð. Einnig er á sama tíma tekin og geymd hver vika fyrir sig í gögnum þannig að áhættan á að tapa gögnum er afskaplega lítil. Þú getur einnig beðið um að fá afrit af þínum gögnum reglulega ef þú óskar til þess að tryggja gagnaöryggi þitt enn frekar.

Hver er munurinn á ykkur og öðrum kerfum?

Í fyrsta lagi er ekkert kerfi á jafn góðu verði og Xbókhald en auk þess er í Xbókhald ýmislegt innifalið sem þú færð hvergi annarsstaðar í grunnkerfi. Þú getur t.d. leyft þínum viðskiptavinum að fá aðgang að sínum upplýsingum á auðveldan hátt. Þú ert með samningakerfi sértu að gefa út reikninga á sömu aðila fyrir álíka upphæðir reglulega. Þú getur sent og prentað PDF tilboð beint í netpósti til þinna viðskiptavina. Þú ert með viðskiptamannakerfi, birgja, vörur og samskiptakerfi en þetta eru allt hlutir sem greitt er aukalega fyrir hjá flestum öðrum bókhaldskerfum. Einnig munt þú fá fullan aðgang að nýjum kerfum án aukins kostnaðar (nema að það séu þjónustur sem kosta okkur smb. SMS o.s.fr.). Á næstunni verður ýmsum nýjungum bætt við en ekki verður frekar farið út í þær hér.

Er launakerfið 100% frítt fyrir einyrkja?

Já, það er 100% frítt allt árið 2007 og jafnvel lengur. Eina skilyrðið er að aðeins sé um einn launamann að ræða.

Hvernig virkar netverslunarkerfið?

Það virkar þannig að allar vörur sem þú skráir í bókhaldskerfið og leyfir að sjáist á ytri vef munu birtast á þinni fyrirtækjasíðu. Þú getur sett inn vörumyndir og nánari upplýsingar um vöru eftir þörfum. Þetta er frábær viðbót fyrir þá sem eru með verslun eða heildverslun.

Get ég sett mitt eigið "look" á fyrirtækjavefinn (netverslunina)?

Ytri vefurinn sem þú færð úthlutað hjá Xbókhald kemur með staðlaðri uppsetningu. Þú getur breytt öllum litum, leturgerð og fleiru beint í gegnum kerfið á einfaldan máta og án þess að þurfa kunna nokkuð í HTML. Ef þú ert með sérþarfir og vilt hafa allt öðruvísi look en við bjóðum upp á geturðu sent okkur mynd/layout sem við gerum þér svo tilboð í að setja sem look á þinn vef.

Afhverju er netverslun Xbókhalds betri en aðrar svona verslanir?

Fyrir því eru nokkrar ástæður; í fyrsta lagi er enginn stofnkostnaður, vörur skrást í verslunarkerfi um leið og í bókhaldskerfi og þegar viðskiptavinur pantar hjá þér er hann jafnframt búinn að stofna sig í bókhaldskerfið og þú ert með tílbúna pöntun sem þú þarft bara að staðfesta sem reikning. Einfaldara getur það ekki verið.

Verður þetta ekki hægagangur þar sem þetta er í gegnum netið?

Við erum með stóra örugga bandbreidd svo ef þú ert að minnsta kosti með 56Kb módem ætti þetta ekki að vera hægara en að skoða venjulegar, hraðar vefsíður.

Er einhver annar kostnaður?

Verðlistinn er eins einfaldur og hugsast getur því aðeins er eitt mánaðargjald sem er fyrir fullan aðgang að öllum grunnþjónustum en aukalega er greitt fyrir verslunarkerfi. Ef þú kannt á vefinn og ert með smá bókhaldskunnáttu geturðu að öllum líkindum notað kerfið okkar án meiri hjálpar og greiðir þar með ekkert nema mánaðargjaldið. Ef þú vilt nota aðra þjónstu smb. gera haus á reikninginn þinn eða hjálpa til við færslur í bókhaldinu greiðirðu aukalega fyrir þá þjónustu.